kindur.is

Eigið fé ehf. ætlar sér ekki bara að vera í samstarfi við ferðaþjónustuaðila, heldur hefur fengið til liðs við sig fagfólk og fyrirtæki í sauðfjárgeiranum til þess að viðskiptavinir okkar geti fengið sem mest útúr sinni kind. Stöðugt eru nýjir samstarfsmöguleikar í skoðun og tökum við öllum ábendingum fegins hendi. Með tíð og tíma verður hægt að nálgast alla þessa þjónustu hér beint á síðunni og velja nákvæmlega hvernig og hvaða aukaþjónustu þú villt nýta þér, auk þess sem boðið verður uppá að borga það með kreditkorti hér í gegn um síðuna.

Önnur þjónusta fyrir Fósturfé:

Fyrir þá sem fóstra kind stendur til boða að láta vinna ullina af henni hjá Ullarselinu . Hjá þeim kostar 18 .000-kr. til 21.000-kr að handspinna kg. af bandi, allt eftir því hversu fínt bandið á að vera. Þannig að tilbúið band úr þínu reyfi, komið í hespur eða hnykla, kostar u.þ.b. 20.000-kr. Reikna má með því að vettlingar úr þinni eigin kind kosti þá u.þ.b. 7.000-kr, húfa u.þ.b. 5.500-kr (fer eftir gerð og lögun), peysa úr þinni eigin kind kostar u.þ.b. 35.000-kr sé miðað við einföldustu gerð og vilji fólk fá teppi úr kindinni sinni, sem allt reyfið fer í, myndi það kosta u.þ.b. 35.000-kr. Sendingarkostnaður ullar frá búi til Ullarsels er greiddur aukalega og einnig frá Ullarseli til eiganda.

Önnur þjónusta fyrir Eigið fé:

Fyrir þá sem eiga kind stendur til boða að láta vinna ullina af henni hjá Ullarselinu. Hjá þeim kostar 18 .000-kr. til 21.000-kr að handspinna kg. af bandi, allt eftir því hversu fínt bandið á að vera. Þannig að tilbúið band úr þínu reyfi, komið í hespur eða hnykla, kostar u.þ.b. 20.000-kr. Reikna má með því að vettlingar úr þinni eigin kind kosti þá u.þ.b. 7.000-kr, húfa u.þ.b. 5.500-kr (fer eftir gerð og lögun), peysa úr þinni eigin kind kostar u.þ.b. 35.000-kr sé miðað við einföldustu gerð og vilji fólk fá teppi úr kindinni sinni, sem allt reyfið fer í, myndi það kosta u.þ.b. 35.000-kr. Sendingarkostnaður og pökkun ullar frá búi til Ullarsels er greiddur aukalega og einnig frá Ullarseli til eiganda.
Sjávarleður ætlar að vera með okkur og vinna gærurnar fyrir þá sem það vilja. Vinnsla á einni lambagæru kostar u.þ.b. 3000-kr * VSK og er sendingarkostnaðurinn og pökkuninn frá sláturhúsi ekki innifalin.


Eigandi eigin fjár getur látið sæða sína kind í gegn um Hrútaskrá sauðfjársæðingarstöðvar Vesturlands. Og valið þar með einn af bestu sauðfjárræktunarhrútum Íslands. Eigandi ber kostnað af svömpun og sæðingu.


Vinnsla á afurðum er innifalið í verði eigins fjár, auk þess heimsendingarkostnaður. Vilji viðskiptavinur hinsvegar láta vinna þær frekar, t.d. tvíreykja læri, þá er það á kostnað eiganda. Eigið fé ehf. er í samstarfi við Krás kjötvinnslu á Selfossi. Innifalið í verði eigin fjár er annað hvort úrbeining eða fínsögun, snirting, pökkun og merking. Síðar mun eigandi geta pantað sér auka þjónustu hjá Krás í gegn um heimasíðuna kindur.is og einnig á viðskiptavinur að geta greitt þar.

 

* Ert þú með vöru eða þjónustu sem þú heldur að eigi heima inná þessari síðu, hafðu samband í síma 892-1780 eða með tölvupósti á kindur@kindur.is .