kindur.is

Krossar
Eigindi
BæjarnafnKrossar
BóndiSnorri Snorrason
Fjöldi fjárplássa0

Staðsetning

Krossar eru í Dalvíkurbyggð um 35 kílómetra norðan Akureyrar og 8 km innan Dalvíkur.

Bæjarlýsing

Bærinn stendur við rætur Sólarfjalls sem Helgi magri gekk á þegar hann nam land á Hámundarstöðum. Hámundarstaðir er næsti bær við Krossa. Á Krossum er rekinn dýragarður með öllum helstu húsdýrunum, þar eru einnig um 100 nautgripir og nokkur hross. Jörðin Stóru Hámundarstaðir er leigð fyrir sauðfjárræktina, þar er rúmlega 300 fjár. Sumarhaginn er í hlíðum Sólarfjalls og á Þorvaldsdal og allt fram í Fögruhlíð. Réttað er í Árskógsrétt.

Leiðarlýsing úr Reykjavík

Leiðarlýsing að bænum Krossar
Mynd af staðsetningu bæjarins
Krossar
Mynd af marki bæjarins