| Eigindi | |
| Bæjarnafn | Gaul |
|---|---|
| Bóndi | Heiða Helgadóttir og Júlíus Konráðsson |
| Fjöldi fjárplássa | 70 |
Staðsetning
Bærinn Gaul er á sunnanverðu Snæfellsnesi, 6 km. vestan við Vegamót, neðan vegar. Næstu bæir við Gaul eru Stekkjavellir, Krossar og Brautarholt.
Bæjarlýsing
Heiða Helgadóttir og Júlíus Konráðsson eru bændur á Gaul. Á bænum eru 200 kindur og 6 hross, auk þess er að sjálfsögðu fjárhundurinn Sporti, veiðitíkin Bína og kisan Loppa. Á sumrin er flest af fénu á fjalli sem er Elliðahlíð, Lágafelli, Baulárvellir og víðar en nokkuð af fénu er heimavið og er niður við sjó. Réttað er í Ölkeldurétt.
Leiðarlýsing úr Reykjavík
Ekið til Borgarness og þaðan til vinstri inn á Mýrar (Vegur 54). Eftir u.þ.b. 100 km er bærinn á vinstri hönd.
Mynd af staðsetningu bæjarins
Mynd af marki bæjarins