| Eigindi | |
| Bæjarnafn | Foss |
|---|---|
| Bóndi | Sveinn Gíslason |
| Fjöldi fjárplássa | 30 |
Staðsetning
Bærinn Foss er á sunnanverðu Snæfellsnesi og stendur við þjóðveg nr. 54, u.þ.b. 100 km frá Borgarnesi og um 7 km. vestan við Vegamót. Foss er ofan vegar og helstu sérkenni eru Elliðahamar sem trónir yfir bænum. Næstu bæir eru Furubrekka, Ölkelda og Álftarvatn.
Bæjarlýsing
Bærinn er klæddur með rauðri klæðningu og er með mosagrænt þak. Húsdýr á bænum auk sauðkindanna eru 15 hestar. Einnig eru á bænum sparihundurinn Biblía og kötturinn Tígri. Helga María Magnúsdóttir og Sveinn Gíslason eru ábúendur að Fossi. Sveinn er umsjónarmaður kindanna. Hann er alinn upp í sveit og hefur alla tíð haft brennandi áhuga á íslensku kindinni og er þekktur fyrir fjárglöggni. Áður var blandað bú að Fossi með kýr og kindur, en ábúendur hættu rekstri um tíma. Sauðfjárstofninn hélst þó við á öðrum bæjum og fyrir 4 árum byrjaði Sveinn að safna að sér „gömlum“ Foss kindum, auk þess að rækta nýjar. Fer stofninn ört stækkandi. Féið á Fossi gengur flest uppí Furudali sem er fjalladalurinn fyrir ofan bæinn, eitthvað er um að féið fari niður í fjöru og svo alla leið yfir til Stykkishólms. Réttað er í Ölkeldurétt sem er á milli bæjarins Ölkeldu og Álftarvatns.
Leiðarlýsing úr Reykjavík
Ekið til Borgarness og þaðan til vinstri inn á Mýrar (Vegur 54). Eftir u.þ.b. 100 km er bærinn á hægri hönd.
Mynd af staðsetningu bæjarins
Mynd af marki bæjarins