Það er mér sönn ánægja að tilkynna að við hjá kindur.is höfum fegnið til okkar liðsauka. Um er að ræða bæinn Krossa sem eru í Dalvíkurbyggð, 35 kílómetra norðan Akureyrar og 8 km innan Dalvíkur.
Bærinn stendur við rætur Sólarfjalls sem Helgi magri gekk á þegar hann nam land á Hámundarstöðum. Hámundarstaðir er næsti bær við Krossa. Á Krossum er rekinn dýragarður með öllum helstu húsdýrunum, þar eru einnig um 100 nautgripir og nokkur hross. Jörðin Stóru Hámundarstaðir er leigð fyrir sauðfjárræktina, þar er rúmlega 300 fjár. Sumarhaginn er í hlíðum Sólarfjalls og á Þorvaldsdal og allt fram í Fögruhlíð. Réttað er í Árskógsrétt. Bóndi er Snorri Snorrason.
Hér er leiðarlýsing úr bænum:
Hlökkum við til samstarfsins og hvetjum ykkur kæru lesendur þessarar síðu til að skoða bæinn og kindurnar. Einnig má benda á heimasíðuna dyragardurinn.com sem er haldið úti af ábúenndum.
Kær kindakveðja