kindur.is

18. sep. 2011

Rákum féð í réttirnar..

Nú styttist óðum í réttir en þær eru eins og áður sagði 24. september klukkan 14:00. Þeir sem hafa huga á að taka þátt í göngum eru vinsamlega beðnir um að setja sig í samband við Hlédísi í síma 8921780. Mæting í göngur er kl. 07:30 sama dag.

Spáin liggur ekki fyrir en gott að taka með sér stígvél – gúmmískó til vara. Einnig er gott að vera með pollagalla eða eitthvað vatnshelt. Svo er auðvitað ullarklæðnaður bæði smart, hlýr og alltaf viðeigandi.
Eftir réttir þá býðst öllum að reka heim, það eru um 3 km leið frá rétt að Fossi. Og eftir það er boðið uppá kjötsúpu og kaffi í fjárhúsunum, innanum ilman fé og ljúfan harmónikkuleik.
Hlökkum til að sjá ykkur, aftur vil ég biðja ykkur um að láta vita um fjölda sem kemur svo við getum keypt inn í samhengi við það. Ef það eru einhverjar spurningar endilega hringið.
Bestu kveðjur