kindur.is

Kæru kindareigendur, gleðilegt sumar og gleðilegan sauðburð. Nú finnst okkur vorið komið þegar fyrstu lömbin eru  komu í heiminn. Hún Drottning bar fyrstu lömbunum og kom með gimbur og hrút hvít að ...
" />
22. apr. 2011

Sauðburður hafin hjá kindur.is!

Slaufa með lömbin sín.
Kæru kindareigendur, gleðilegt sumar og gleðilegan sauðburð. Nú finnst okkur vorið komið þegar fyrstu lömbin eru  komu í heiminn. Hún Drottning bar fyrstu lömbunum og kom með gimbur og hrút hvít að lit eins og mamman og pabbinn sem er sæðingarhrúturinn Laufi . Fyrstu lömb vorsins kallast alltaf lambadrottning og lambakóngur. Eigandi Drottningar er Hjördís Kristjánsdóttir.
Einnig eru bornar: Ísbjörg Fönn  kom með tvær hvítar gimbrar önnur kom  með afturfætur fyrst og var mjög slöpp eftir þetta erfiði en er nú búin að ná sér, þær eru undan sæðishrútnum Borða. Eigendur eru Matarklúbburinn Hornfirðingur.
Kata Páls með hvítan hrút og gimbur og undan sæðishrútnum Boga. Eigendur eru Anna Sigurlaug  og Sigmundur Davíð.  
Prjónína  kom með flekkóttann hrút og gimbur og eru þau undan sæðishrútnum Skrauta. Eigandi er Ragnheiður Eiríksdóttir.
Þau ykkar sem áhuga hafa að koma og kíkja í sauðburð eru beðin um að setja ykkur í samband við kindur.is í síma 4356720 / 861-2511. Hjartanlega velkomin.