Það eru ekki alltaf jólin hjá íslensku sauðkindinni, en þau eru svo sannarlega að ganga í garð núna með tilheyrandi verkum. Eitt af aðalverkum sauðfjárbænda á veturna er að para saman hrúta og ær. Við erum búin að setja inn myndir af bæjarhrútum á Fossi og biðjum við ykkur kindaeigendur góðir að velja ykkur hrút sem fyrst. Ef þið eruð óviss stendur ykkur til boða ráðgjöf hjá Sveini bónda á Fossi í síma 4536720. Það má einnig velja sér sæðingarhrút úr hrútaskrá Vesturlands, það kostar kr. 1.500- aukalega.
Kindur.is óskar ykkur öllum gleðilegra jóla!