kindur.is

3. júl. 2009

Átt þú ull hjá kindur.is?

Kæru kindaeigendur.

Þau ykkar sem létuð þvo ullina ykkar í vetur vinsamlega gefið ykkur fram í síma  8921780 eða  4356741 . Það liggur ennþá hjá okkur ull frá nokkrum aðilum, þvegin og fín.

Allar kindur eru nú á fjalli og við vitum ekki betur en að þær hafi það gott. Það sást til Hildar, Dúnu, Evu og frú Sigríðar um daginn og heilsaðist þeim öllum vel. Á Fossi eru 2 heimalingar, hrútur og gimbur, en móðir þeirra var síðasta kindin til að bera og dó hún 2 dögum eftir burð. Heimalingunum þarf að gefa mjólk úr pela og hefur heimilisfólk á Fossi gengið þeim í móðurstað. Hrúturinn heitir Bjartur og gimbrin heitir Sóley.

Kindaeigendur sem leggja ferð sína á Snæfellsnesið eru hjartanlega velkomin að Fossi til að klappa og jafnvel gefa heimalingum, vinsamlega hringja á undan sér í síma  435-6741 .

Bestu kveðjur.