Jæja nú fer sauðburðurinn að klárast og því viljum við endilega hvetja þá sem ekki hafa komið í vor til þess að leggja land undir fót og kíkja í sveitina. Fátt eins hressandi eins og lítil lömb.
Kindurnar fara svo á fjall mjög fljótlega og göngur og réttir eru ekki fyrr en í haust. Þannig að endilega koma í þessari viku þeir sem vilja ná að knúsa lítil lömb.
Bestu kveðjur
kindur.is