Langar þig til að taka á móti lambi? Getur þú vakað heila nótt?
Ef þú átt 10.000 kr., stígvél og gott skap þá getur þú komið til okkar að Fossi og prófað að vera alvöru bóndi í sólarhring. Foss er staðsett í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi og þar búa 130 kindur, 1 hundur, 1 köttur, 10 landnámshænur og 1 landnámshani og 6 hestar.
Innifalið í verði er það sem er á boðstólnum í mat hverju sinni á bænum. En að sjálfsögðu fá allir landnámshænuegg í morgunmat og kaffi og suðusúkkulaði í nesti á nóttunni. Innifalið er einnig hin ýmsu sveitastörf eins og að gefa kindum, hestum og hænum. Sópa jötur og garða. Smíða stíjur og öll venju- og óvenjuleg sveitastörf.
Frekari uppl. veitir Hlédís í síma 892-1780.