kindur.is

19. mar. 2009

Allt með kyrrum kjörum hjá kindur.is

Fátt eins notalegt og að gússast í litlum lömbum.

Allt er ennþá með kyrrum kjörum á öllum bæjum kindur.is. Kindurnar blása út og hafa það huggulegt, sauðburður hefst ekki fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð. Það hvort við eigum von á tvíhöfðalömdum eins og sjá má hér http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/18/tvihofda_lamb_i_olfusi/ vitum við ekki. Betra er þó að hafa einn haus en tvö læri!

Ullin er komin til hennar Rithu í Grenigerði og er hún að þvo hana. Við munum láta þau ykkar sem eruð með reifi þar vita þegar hún er tilbúin.

 

Bestu kv.

kindur.is