Kæru kindaeigendur
Nú er komið að fyrsta opna deginum 2009 hjá kindur.is. En þann 11. janúar verðum við með opin dag. Þá gefst fólki kostur á að koma í sveitina og heimsækja sína kind. Vöfflur með sultu verða í boði fyrir kindaeigendur í fjárhúsunum á Fossi ( 7 km. frá Gaul ) fyrir þá sem vilja fá sér sveitavöfflu.
Einnig minnum við fólk á að láta vita ef það vill fá ullina sína og hvert við eigum að senda hana. Vinsamlega sendið á okkur póst um það fyrir sunnudaginn. Eins ef þið viljið ná í hana í leiðinni.
Kindaeigendur eru beðnir um að láta vita af komu sinni með því að senda póst á kindur@kindur.is eða í síma 892-1780 / 435-6741.
Hlökkum til að sjá ykkur.