kindur.is

8. des. 2008

Jól hjá sauðfjárbændum

Senn líður að jólum og þá er eitt af  jólaverkum sauðfjárbænda að hleypa til. Þeim kindaeigendum sem eiga sínar kindur gefst nú kostur á að para sína kind við þann hrút sem þau vilja af bænum. Ættu allir eiginfjár eigendur að vera búnir að fá póst þess efnis. Öllum kindaeigendum gefst kostur á að koma í sveitina í jólamánuði og kýkja á sína kind.

Einnig eru kindurnar rúnar um þessar mundir og biðjum við þá sem vilja eiga ullina af sinni kind um að láta okkur vita í síma 892-1780 eða með pósti á kindur@kindur.is

Við minnum á að eigendur og velunnarar eru ávalt velkomnir svo lengi sem
þeir hringja á undan sér.

Bestu kveðjur
kindur.is