Síðustu daga hafa bændur á Fossi og Gaul verið önnum kafnir við að snyrta klaufir á kindunum, svokölluð fjór fótsnyrting. Óðum styttist í sauðburð og því ekki úr vegi að vera vel snyrtar þegar að burði kemur.
Undanfarna daga hefur veður verið með ágætum á Snæfellsnesi og eru bændur almennt bjartsýnir á vorið en það er nú mikill annatími hjá sauðfjárbændum. Tún virðast ætla að koma vel undan vetri og hefur ekki mikið borið á kali í túnum á Nesinu.
Til stendur að halda opna daga hvað úr hverju og verða þeir auglýstir hér sérstaklega og eigendum sendur póstur.
Kær kindakveðja
kindur.is