Kindur.is er vefverslun með kindur, sú eina sinnar tegundar í heiminum. Á kindur.is gefst þér kostur á að eignast kind í sveit. Boðið er uppá tvær leiðir. Annars vegar fósturfé og hins vegar eigið fé.
Fósturfé:
Þar er þér boðið að velja kind á vefnum og skíra hana, í þeim tilfellum sem það er hægt. Þú færð jólakort með mynd af kindinni þinni þar sem farið er yfir árið hjá henni. Þú fær aðgengi að bænum þar sem kindin er, og mátt koma og heimsækja hana á búið 5-6 sinnum yfir árið, allt eftir því hvað er í boði hverju sinni. Gegn aukagjaldi gefst þér kostur á að nýta ullina af kindinni þegar hún er rúin. Ullin er send í Ullarselið sem vinnur hana eftir þínum óskum. Þannig getur þú eignast vettlinga, húfu eða lopapeysu af sinni eigin kind.
Eigið fé:
Þar er þér boðið að velja þér kind á vefnum og skíra hana. Þú færð jólakort með mynd af kindinni, þar sem farið er yfir árið hjá henni. Þú færð aðgengi að bænum þar sem kindin er og mátt heimsækja hana á búið 5-6 sinnum yfir árið, allt eftir því hvað er í boði hverju sinni. Á opnum degi, eða í gegnum netið getur þú síðan valið þann hrút af búinu sem þú vilt nota til undaneldis fyrir kindina þína. Síðan færð þú kjötafurðirnar[1] af lömbunum þínum sendar heim, eftir að þú hefur valið hvort þú viljir láta úrbeina eða fínsaga skrokkinn/skrokkana í kjötvinnslu, innpakkaðar og tilbúnar til neyslu eða í frystinn. Gegn aukagjaldi gefst þér kostur á að nýta af kindinni ullina. Ullin er þá send í Ullarselið sem vinnur hana frekar eftir óskum eigandans. Gegn aukagjaldi getur eigandi kindarinnar látið sæða hana, þá velur hann sér hrút úr hrútaskrá þar sem allir helstu kynbótahrútar Íslands eru. Eigandi getur látið vinna kjötafurðirnar frekar í kjötvinnslunni, t.d. tvíreykja læri, gegn aukagjaldi. Einnig býðst eiganda vinnsla á lambagærum hjá Sjávarleðri gegn aukagjaldi.
[1]Eins og veiðibændur selja veiðileyfi þá selur Eigið fé ehf. sauðfjárræktunarleyfi, ekki er hægt að ábyrgjast að veiðimaðurinn fiski eitthvað. Ef allt gengur að óskum þá býðst þér tækifæri tilað rækta þitt eigið lambakjöt og má því segja að gæðastýringinn nái heim í eldhúsið í stað sláturhússins