Staðarsveit og nágrenni.
Í Staðarsveit á Snæfellsnesi kennir ýmisa grasa og fjölbreytnin er mikil. Fyrst ber að nefna ölkelduvatnið sem hressir bætir og kætir. Hægt er að fá sér ískalt ölkelduvatn á bænum Ölkeldu, en einnig er hægt að baða sig uppúr ylheitri ölkelduvatnslaug að félagsheimilinu Lýsuhóli. Sveitin býður uppá gjöful veiðisvæði bæði í vötnum t.d. Lýsuvötn og ám t.d. Staðará. Í Staðarsveit er svokölluð selafjara hjá Ytri-Tungu þar sem selir hreiðra um sig á skerjum þegar fjarar út. Einu kartöfluræktendurnir á sunnanverðu Snæfellsnesi eru í Staðarsveit, nánar tiltekið að Hraunsmúla. Segir sagan að um bestu kartöflur landsins sé að ræða, enda ræktaðar af mikilli alúð undir Snæfellsjökli. Fullbúinn íþróttavöllur er að félagsheimilinu Lýsuhóli með 400m hlaupahring og fl. Þegar svo kemur að því að gista stendur ferðamanninum ansi margt til boða. Hof er fyrsti ferðaþjónustubærinn sé keyrt í gegn um sveitina frá austri til vesturs. Þar við hliðina er Langaholt og þar er að finna 9 holu golfvöll og veiði svo eitthvað sé nefnt. Haldi maður áfram að keyra vestur komum við að ferðaþjónustubænum Lýsuhóli en þar er hestaleiga og ferðamönnum stendur til boða að taka á leigu sumarhús. Síðasti bær sveitarinnar er Hótel Búðir með sínum fornfrægu sandfjörum og Búðakirkju, að ekki sé minnst á búðaklettinn í allri sinni dýrð. Fjallgarður Snæfellsnes er tígulegur en ekki óyfirstíganlegur, hægt er að ganga bæði Lýsuhólsskarð og Bláfeldarskarð yfir og í átt að Grundarfirði sem er hinum megin fjallgarðsins.
Sveitirnar í kring um Staðarsveit eru ekki síðri, Breiðavík tekur við vestar með öllu sínu berjalingi og Rauðfellsgjánni. Arnarstapi og Hellnar eru svo rúsínan í pylsuendanum, má þar fátt eitt nefna eins og Fjöruhúsið á Hellnum, Snjófell, smábátahöfn, kríjuvarp, gönguleið frá Arnarstapa að Hellnum. Mikil uppbygging á sér stað á þessu svæði og er fyrirhugað að á Bjargi verði starfræktur húsdýradagarður. Nú þegar er komin upp hoppukastali, pylsuvagn og stöðugt bætist í húsdýrahópinn.
Leiðin frá höfuðborgarsvæðinu liggur um þjóðveg 1 að Borgarnesi og þaðan um þjóðveg 54. Á þeirri leið kennir ýmissa grasa. Eldfjallið Eldborg vakir yfir þjóðveginum og býður þess að fólk gefi sér tíma til að labba uppá það og kýkja ofaní gíginn. Hægt er að kaupa andaregg og sauðaosta að Ystu-Görðum í Kolbeinsstaðahreppi svo eitthvað sé nefnt.Ekki má gleyma Snæfellsjöklinum en hann má fara gangandi, sleðandi, skíðandi og jeppandi. Yfir sumartímann má svo keyra jökulhálsinn yfir til Ólafsvíkur. En einnig er hægt að keyra bæði Fróðárheiði eða hringinn og stoppa t.d. í Dritvík, Djúpalónssandi eða á Dagverðará.
Ferðaþjónustuaðilar ætla að kappkosta við að bjóða kindaeigendum hin ýmsu tilboð bæði af vöru og þjónustu, í sambandi við opna daga og verða tilboðin bæði auglýst á síðunni og send tilkinning á þá sem eru á póstlista.
Ert þú með vöru eða þjónustu sem þú villt sjá hér inni? Hafðu samband kindur@kindur.is eða 892-1780