kindur.is

Kaupsamningur um “fóstur fé”

 

 

Hér með gera fyrirtækið Eigið fé ehf kt. ____681207-0900____ sem seljandi og

 

 

___________________________ kt ._________Heimili __________________sem kaupandi,

 

 

með sér eftirfarandi samning:

 

 

___________________________ gerist tímabundinn fóstri að kind merktri ___________

 

 

að nafni _______________________________sem verður á fóðrum og í

 

 

hagagöngu hjá bóndanum á _______________________________ sem seljandi hefur áður gert samning um afnot á viðkomandi kind. Bóndinn er eigandi og umráðamaður að lögum og ábyrgur fyrir uppeldi og ummönnun fjárins, samanber m. a. dýraverndarlög og lög um búfjárhald.

 

Með samningi þessum, sem gildir til eins árs í senn, fær kaupandi umgengnisrétt við fósturkindina þ.e. allt að 5 til 8 heimsóknir á ári. Dagsetningar verða ákveðnar síðar en horft er til dagsetninga sem tengjast sauðburði, réttum, rúningi, almennum sveitadögum, tilhleypinga o.fl. Kaupandi er hafður með í ráðum um endanlegar dagsetningar.

Fóstrinn fær að gefa kindinni nafn. Fóstrinn fær m.a. send jólakort frá kindinni þar sem stiklað er á stóru í atburðum ársins í lífi kindarinnar. Fóstranum býðst einnig að eiga ullina af kindinni og getur fengið prjónavörur úr ullinni gegn aukagjaldi.

Komi til óvæntra/ófyrirséðra atvika þannig að fósturkindinni verði lógað samkvæmt ákvörðun dýralæknis og/eða bónda verður komið til móts við kaupanda með boði um val á annari kind að kostnaðarlausu fyrir kaupandann. Óvæntar uppákomur og tjón verða ekki bætt með öðrum hætti.

 

Umsamið kaupverð er kr.15.500- og greiðist innan viku inn á bankareikning seljanda kt.681207-0900 b.313 h. 26 r. 4880. Eða skuldfæra mánaðarlega með kreditkorti kr. 1.292-.

 

Undirritað þann / 2008

 

Kaupandi Seljandi