kindur.is

Kaupsamningur um “Eigið fé”

 

Hér með gera fyrirtækið Eigið fé ehf. kt. ____681207-0900____ sem seljandi og

 

_____________________________ _____________ ________________________

Nafn kt heimili

_____________________________ sem kaupandi, með sér eftirfarandi samning: Netfang og sími.

 

Kaupandi gerist tímabundinn fóstur/eigandi að kind merktri ___________ að nafni

 

_________________________sem verður á fóðrum og í hagagöngu hjá

 

bóndanum á ________________________________________ sem seljandi hefur áður gert

 

samning um afnot á viðkomandi kind. Bóndinn verður áfram eigandi og umráðamaður að lögum og ábyrgur fyrir uppeldi og ummönnun fjárins, samanber m. a. dýraverndarlög og lög um búfjárhald.

 

Með kaupsamningi þessum, sem gildir til eins árs í senn, fær kaupandi ákveðin umráða- og nytjarétt yfir hinu keypta samanber liði 1-7 hér að neðan.

 

  1. Kaupandi velur sér kind annaðhvort gegnum heimasíðuna www.kindur.is eða í heimsókn á svonefndum opnum degi hjá þeim bóndabýlum sem eru í samstarfi við Eigið fé ehf.
  2. Kaupandi fær að gefa kindinni nafn, hafi hún ekki fengið slíkt.
  3. Kaupandi fær aðgengi, þ.e. leyfi til að heimsækja eigin kind allt að 5 sinnum á ári á auglýstum opnum dögum á viðkomandi býli. Dagsetningar verða ákveðnar síðar en horft er til dagsetninga sem tengjast sauðburði, réttum, rúningi, almennum sveitadögum, tilhleypinga o.fl.
  4. Kaupandi velur hrút til undaneldis, annaðhvort hrút af býlinu (valið gegnum heimasíðu eða á opnum degi) eða með sæðingu eftir val í hrútaskrá en þá er greitt aukagjald í samræmi við kostnað sem af slíku leiðir.
  5. Kaupandi fær send jólakort frá kindinni þar sem stiklað er á stóru í atburðum ársins.
  6. Kaupandi fær heimsendar kjötafurðir og getur valið hvort hann tekur skrokka í heilu, svokallaðri 7-parta sögun, fínsögun eða úrbeinað. Afurðir eru innpakkaðar og merktar.
  7. Kaupanda býðst að láta vinna og prjóna úr ullinni af eigin kind gegn aukagjaldi. Einnig býðst honum að fá kjötafurðirnar meira unnar gegn gjaldi (reyking o.fl). Þá er mögulegt að fá gærur unnar hjá Sjávarleðri gegn aukagjaldi.
  8. Áhverju hausti verður dýralæknir fengin til að meta ástand kindana og skera úr um hvort eða hvaða kindur eru ekki æskilegar til ásetnings.

 

Komi til óvæntra/ófyrirséðra atvika s.s. að kind verði ekki talin hæf til ásetnings viðkomandi vetur samkvæmt ákvörðun dýralæknis og/eða bónda, eða vandamál við sauðburð þá verður komið til móts við kaupanda með boði um aðra kind að kostnaðarlausu fyrir kaupandann. Óvæntar uppákomur og tjón verða ekki bætt með öðrum hætti. Kaupandi öðlast samanber ofangreint ákveðinn umráð- og nytjarétt yfir kindinni en honum er ekki heimilt að flytja/láta flytja kindina/kindurnar af bújörðinni. Óski viðskiptavinur að lamb/lömb undan kindinni fái að lifa verður leitast við að koma til móts við þær óskir gegn gjaldi sem svarar til kaupa á nýrri kind/kindum. Þetta er þó háð því skilyrði að pláss verði á lausu á viðkomandi sveitabæ.

 

Umsamið kaupverð er kr.39.500- og greiðist innan viku inn á bankareikning seljanda kt.681207-0900 b.313 h. 26 r. 4880. Eða skuldfæra mánaðarlega með kreditkorti kr. 3.292-.