kindur.is

Hugmyndin að baki kindur.is

Ekki er langt síðan að við Íslendingar voru bændaþjóð og víða leynist svokallaður skrifstofubóndi. Með tilkomu www.kindur.is gefst öllum laumu-sauðfjárbændum að rækta sitt eigið kjöt í gegn um heimasíðu, fá það svo full unnið og heimsent til sín að hausti.

Opnu dagarnir eru svo tilkomnir vegna þess hve hratt hlutirnir hafa þróast frá því við vorum bændaþjóð og því hve lítinn aðgang almenningur hefur að sveit í dag. Með því að eiga kind í sveit kemst fólk nær uppruna sínum og framleiðir sitt eigið kjöt.

Með auknu aðgengi að sveit, vonumst við til þess að skilningur almennings aukist á mikilvægi þess að halda sveitum landsins í byggð. Fyrir utan það hversu falleg skepna íslenska kindin er og hversu gaman það er að eiga sitt eigið fé.

Kindur á garða